Nýársóskir

75. fundur
Föstudaginn 30. desember 1994, kl. 02:11:00 (3511)


[02:11]
     Finnur Ingólfsson :
    Ég vil fyrir hönd okkar þingmanna þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir í okkar garð. Ég óska forseta og fjölskyldu hans gleðilegs nýs árs um leið og góð forusta forseta um þingstörfin á því ári sem senn er nú liðið er þökkuð.
    Þá vil ég líka þakka starfsfólki Alþingis vel unnin störf og vona að þess bíði gleðilegt og farsælt nýtt ár. Því vil ég biðja alþingismenn að árétta þessa ósk mína með því að rísa úr sætum. --- [Þingmenn risu úr sætum.]