Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.

1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 200 . mál.


226. Fyrirspurn


til landbúnaðarráðherra um lausagöngu búfjár á Reykjanesi.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.


1.     Viðgengst enn þá lausaganga búfjár á Reykjanesi vestan girðingar frá Heiðmörk að Kleifarvatni?
2.     Hvenær er fyrirhugað að ljúka uppsetningu girðingar frá Kleifarvatni í Sýslustein?
3.     Hver er fjöldi búfjár á Reykjanesi vestan þeirrar línu er framangreindar girðingar mynda?


Skriflegt svar óskast.