Ferill 278. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 278 . mál.
518. Breytingartillögur
við frv. til l. um ráðstafanir í ríkisfjármálum á árinu 1995.
Frá Kristínu Ástgeirsdóttur, Jóhannesi Geir Sigurgeirssyni,
Steingrími J. Sigfússyni og Finni Ingólfssyni.
1 . Við 5. gr. Greinin orðist svo:
3. mgr. 6. gr. laganna orðast svo:
6.3. Ráðherra er heimilt að skipa einn af starfandi heilsugæsluhjúkrunarfræðingum héraðsins sem héraðshjúkrunarfræðing til fjögurra ára í senn.
2 . 8. gr. falli brott.
3 . 9. gr. falli brott.