Ferill 229. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


118. löggjafarþing 1994–1995.
Nr. 3/118.

Þskj. 546  —  229. mál.



Þingsályktun

um fullgildingu samnings um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samning um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar sem undirritaður var í Marakess í Marokkó 15. apríl 1994.
    Alþingi ítrekar að þrátt fyrir fullgildingu samningsins gildi óbreytt skipulag á innflutningi landbúnaðarvara þar til lögum hefur verið breytt með hliðsjón af samningnum. Þær lagabreytingar, þar með taldar tollabreytingar, skulu gerðar með hliðsjón af GATT-tilboði Íslands til að veita innlendri framleiðslu nauðsynlega vernd. Landbúnaðarráðherra verði tryggt forræði um allar efnislegar ákvarðanir í því stjórnkerfi sem varðar landbúnað og innflutning landbúnaðarvara og komið verður á fót á grundvelli þessarar ályktunar.

Samþykkt á Alþingi 29. desember 1994.