Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.

1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 216 . mál.


562. Svar


sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Elínbjargar Magnúsdóttur um staðfesta kauptryggingarsamninga fiskvinnslufólks.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvað hafa borist margir staðfestir kauptryggingarsamningar fiskvinnslufólks á ári frá árinu 1986, sundurliðað eftir árum, fram til 31. október 1994?

    Sem svar við fyrirspurninni er birt útskrift úr tölvukerfi starfsfræðslunefndar fiskvinnslunnar, en nefndin heyrir undir ráðuneytið og er hlutverk hennar að skipuleggja fræðslustarfsemi fiskvinnslufólks. Nefndin heldur saman afritum af kauptryggingarsamningum fiskvinnslufólks, enda er þátttaka á grunnnámskeiðum nefndarinnar bundin því skilyrði að kauptryggingarsamningur hafi verið gerður. Erfitt hefur reynst að greina upplýsingarnar eftir árum eins og óskað er eftir í fyrirspurninni. Tölvuútskriftin kemst eins nærri því og mögulegt er. Efri línan sýnir ráðna starfsmenn í hverju fyrirtæki frá 1986 til 1994 og neðri línan sýnir þá sem hætt hafa eða hefur verið sagt upp á sama tímabili. Skil á afritum kauptryggingarsamninga frá fyrirtækjum til skrifstofu starfsfræðslunefndarinnar hafa verið misgóð gegnum tíðina og því nauðsynlegt að hafa fyrirvara á túlkun þeirra upplýsinga sem í tölvuútskriftinni eru.


Fjöldi ráðninga og starfsloka á árunum 1986–94.


(Tölvutækur texti ekki til.)