Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá
upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.
199495. 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing.
339
. mál.
793. Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 28/1985.
Frá félagsmálanefnd.
1
.
Við 1. gr.
a
.
Síðari málsliður fyrri efnismálsgreinar orðist svo: Lögreglustjórar skulu hafa samráð
við sveitarstjórnir og almannavarnanefndir í umdæmi sínu, svo og Veðurstofu Íslands,
við ráðningu þessara starfsmanna.
b
.
Í stað 3. málsl. síðari efnismálsgreinar komi svohljóðandi málsliður: Veðurstofan skal
annast þjálfun starfsmannanna.
2
.
Á eftir 1. gr. komi tvær nýjar greinar er orðist svo:
a
.
(2. gr.)
Á eftir 1. mgr. 7. gr. laganna kemur ný málsgrein er orðast svo:
Sé hagkvæmara talið, til að tryggja öryggi íbúa gagnvart ofanflóðum, er sveitarstjórn heimilt að gera tillögu um að kaupa húseignir í stað annarra varnaraðgerða sem
ofanflóðasjóður fjármagnar að hluta eða öllu leyti samkvæmt þessum lögum. Um
greiðslur til sveitarfélags vegna slíkra kaupa fer skv. 4. tölul. 1. mgr. 11. gr. Náist ekki
samkomulag um kaup á húseign er sveitarstjórn heimilt að taka eignina eignarnámi.
b
.
(3. gr.)
Við 9. gr. laganna bætist ný málsgrein er orðast svo:
Sveitarstjórn ber ábyrgð á viðhaldi varnarvirkja.
3
.
Við 2. gr. Eftirfarandi breytingar verði á fyrri efnismálsgrein:
a
.
Við 1. tölul. bætist: í samræmi við nánari reglur sem félagsmálaráðherra setur.
b
.
3. tölul. orðist svo: Greiða má allt að 100% af kostnaði við kaup og uppsetningu á tækj
um og búnaði sem sérstaklega er aflað til rannsókna og eftirlits með ofanflóðahættu.
Sama gildir um kostnað við rannsóknir sem miða að því að bæta hönnun og auka nýtingu varnarmannvirkja.
c
.
4. tölul. orðist svo: Greiða má allt að 90% af kostnaði við undirbúning og framkvæmdir
við varnarvirki. Kostnaður við kaup á löndum, lóðum og húseignum auk kostnaðar við
flutning þeirra vegna varna telst með framkvæmdakostnaði.
d
.
5. tölul. falli brott.