Ferill 437. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 437 . mál.


891. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, og l. nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



     1 .     Á eftir 3. gr. komi ný grein, 4. gr., er orðist svo:
                  Upphaf C-liðar 69. gr. orðast svo:
                  Maður sem skattskyldur er skv. 1. gr. og ber vaxtagjöld af lánum, sem tekin hafa verið vegna kaupa eða byggingar á íbúðarhúsnæði til eigin nota, þar með talin kaup á eignarhlut í almennri kaupleiguíbúð skv. 76. gr. laga nr. 97/1993, á rétt á sérstökum bótum, vaxtabót um, enda geri hann grein fyrir lánum og vaxtagjöldum af þeim í sérstakri greinargerð með skattframtali í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.
     2 .     Við 4. gr. Greinin orðist svo:
                  Ákvæði kafla þessa öðlast þegar gildi.
                  Ákvæði 1. gr. kemur til framkvæmda við álagningu tekjuskatts og eignarskatts á árinu 1995 vegna tekna á árinu 1994.
                  Ákvæði 2. gr. og b-liðar 3. gr. koma til framkvæmda frá og með 1. júlí 1997 og tekur til iðgjalda sem greidd hafa verið vegna launatímabila frá og með þeim tíma.
                  Ákvæði a-liðar 3. gr. kemur til framkvæmda við álagningu á árinu 1996 vegna tekna og gjalda á árinu 1995 og eigna í lok þess árs.
                  Ákvæði 4. gr. kemur til framkvæmda við álagningu á árinu 1995.
                  Þegar lög þessi hafa hlotið staðfestingu er heimilt að fella meginmál þeirra inn í lög nr. 75 14. september 1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, og gefa þau út svo breytt.
     3 .     Við 5. gr. Eftirfarandi breytingar verði á greininni:
                   a .     Ákvæði til bráðabirgða I orðast svo:
             a.    Vegna launatímabila frá 1. apríl 1995 til og með 31. desember 1995 er heimilt að draga frá tekjum manna skv. II. kafla laganna, sem ekki eru tengdar atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi, 50% iðgjalda launþega sem greidd hafa verið til lífeyris sjóða sem starfa samkvæmt lögum eða hlotið hafa staðfestingu fjármálaráðuneytis ins skv. 2. gr. laga nr. 55/1980, að hámarki 2% af heildarlaunum. Frádráttur sam kvæmt þessum staflið kemur til framkvæmda við álagningu á árinu 1996.
             b.    Vegna launatímabila frá 1. janúar 1996 til og með 30. júní 1996 er heimilt að draga frá tekjum manna skv. II. kafla laganna, sem ekki eru tengdar atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi, 50% iðgjalda launþega sem greidd hafa verið til lífeyrissjóða sem starfa samkvæmt lögum eða hlotið hafa staðfestingu fjármálaráðuneytisins skv. 2. gr. laga nr. 55/1980, að hámarki 2% af heildarlaunum. Vegna launatímabila frá 1. júlí 1996 til og með 31. desember 1996 skal frádrátturinn vera 75% af iðgjaldi launþega að hámarki 3% af heildarlaunum. Frádráttur samkvæmt þessum staflið kemur til framkvæmda við álagningu á árinu 1997.
             c.    Vegna launatímabila frá 1. janúar 1997 til og með 30. júní 1997 er heimilt að draga frá tekjum manna skv. II. kafla laganna, sem ekki eru tengdar atvinnu rekstri eða sjálfstæðri starfsemi, 75% iðgjalda launþega sem greidd hafa ver ið til lífeyrissjóða sem starfa samkvæmt lögum eða hlotið hafa staðfestingu fjár málaráðuneytisins skv. 2. gr. laga nr. 55/1980, að hámarki 3% af heildarlaun um. Frádráttur samkvæmt þessum staflið kemur til framkvæmda við álagn ingu á árinu 1998.
                   b.     Í stað „1996“ í 1. málsl. 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II komi: 1995.