[10:43]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (um fundarstjórn) :
Virðulegi forseti. Ég vona að þetta verði ekki dæmi um það sem koma skal, þessi ræða hv. þm., því að ég hafði ekki í neinum hótunum í minni ræðu hér áðan heldur bað ég um samvinnu um það hvernig ræða mætti þau mál sem hér eru til umræðu í dag. Ég hafði auðvitað engar athugasemdir við það að gera að það væri tvöfaldur ræðutími í málinu, en þar sem málið er í raun og veru eitt þótt það komi fram í tveimur frv. þá benti ég, að ég hélt, afar auðmjúklega og kurteislega á það að auðvitað væri hægur vandinn að sameina þessi frv. í einu frv. og það hefði enginn getað gert athugasemd við það. Það var hótunin sem hv. þm. var að tala um.
Aðalefni ræðu minnar var að biðja um samvinnu við þingflokk Alþb., samvinnu um það að ræða mætti þessi mál ítarlega í tvöföldum ræðutíma en að ræða þau sem eitt því málið er í raun og veru eitt þótt
að það sé breyting á tvennum lögum. Þetta var nú efni minnar ræðu. Síðan sá hv. þm. ástæðu til þess að ræða önnur mál.
Ég vil taka fram af því tilefni til þess að reyna að svara kurteislega því sem hér hefur komið fram, þó það hafi ekki verið lagt fram í spurnarformi heldur í formi dylgna af ýmsu tagi, að þá er fundur sá sem ég er að fara á, reyndar eru það tveir fundir sem haldnir eru samtímis, annars vegar er það Norðurlandaráðherrafundur fjármálaráðherra og hins vegar er það fundur hjá OECD sem fjallar um ríkisfjármál og um atvinnuleysismál. Við höfum lagt talsvert kapp á það, fjármálaráðherrar á Norðurlöndum, að biðja OECD að vinna að þeim málum en á vegum OECD og þeirra aðila sem koma nálægt vinnu OECD, þar á meðal Alþýðusambands Íslands og Vinnuveitendasambandsins hefur verið talsverð þátttaka í undirbúningi þessa máls eins og fram kom hjá forseta Alþýðusambandsins í útvarpsviðtali fyrir nokkru. Við höfum lagt áherslu á það að fylgjast með og taka þátt í þessari vinnu og það er ástæðan fyrir því að ég verð erlendis enda verður þing ekki nema þrjá daga í næstu viku.
Að lokum kemur það mér á óvart, virðulegur forseti, að það sé kvartað undan því að haldinn sé fundur hér í dag, á föstudegi, sem auðvitað er oft gert ekki síst í ljósi þess að það hefur aðeins einn fundur verið haldinn um málefni í þessari viku en það var í gærkvöldi í útvarpsumræðu en enginn fundur var allan daginn.
Ég verð, virðulegur forseti að óska enn á ný eftir því hvort það sé hugsanlegt að þingflokkur Alþb. geti fallist á þá málsmeðferð. Ef ekki þá auðvitað ræð ég því ekki, en þessi ósk liggur fyrir og það verður fróðlegt að sjá hvort henni verður hafnað vegna hótana af minni hálfu eftir að ég hef skýrt mitt mál eins og ég hef gert hér. Ég tel það nokkuð langt til seilst, virðulegur forseti, ef menn kalla þetta hótun sem ég hef verið að lýsa hér á mjög málefnalegan hátt.