Verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf

3. fundur
Föstudaginn 19. maí 1995, kl. 11:18:21 (59)


[11:18]
     Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar) :
    Herra forseti. Það er að sjálfsögðu rétt sem fram kom hjá hæstv. fjmrh. að málið átti nokkurn aðdraganda hér í þinginu en hv. efh.- og viðskn. hafði afar lítinn tíma til að fjalla um málið sem er auðvitað það sem skiptir mestu, þ.e. hvernig málið er kannað í þinginu og um hvað það snýst. Nefndin hafði ákaflega lítinn tíma vegna þess hve málið kom seint til hennar og reyndar var því lítið sinnt í nefndinni vegna þess hve brýnt var að ræða önnur mál.