Áfengislög

5. fundur
Þriðjudaginn 23. maí 1995, kl. 16:19:29 (186)


[16:19]
     Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Þegar þetta frv. var í smíðum á sínum tíma og fyrsta gerð þess, þá var haft samráð við skattrannsóknarstjóra einmitt vegna þeirra breytinga sem hér er verið að leggja til og þar kom fram það álit að þetta gæti auðveldað þeim aðilum sem fara með skatteftirlit. En það er sjálfsagt fyrir hv. nefnd. að leita eftir því og fá á því staðfestingu og sjálfsagt að leita eftir áliti löggæsluaðila á þessu frv. og mjög eðlilegt að hv. nefnd kalli eftir slíku áliti við meðferð og umfjöllun um frv.