[14:26]
Bryndís Hlöðversdóttir :
Virðulegi forseti. Tilefni þessarar umræðu er eins og hér hefur komið fram boðað verkfall Sjómannasambandsins. Í fréttum undanfarna daga hefur komið fram að íslenskir útgerðarmenn hafa uppi fyrirætlanir um að gera ráðstafanir til að koma sér undan umræddu verkfalli. Verkfallið er að því er ég best fæ séð löglega boðað og í fullu samræmi við íslensk lög og venjur en íslensk lög gera eins og reyndar lög flestra siðmenntaðra þjóða ráð fyrir því að launafólk geti farið í verkföll til að knýja fram kjarakröfur sínar. Samt sem áður hefur það gerst núna opinberlega og á ótrúlega óforskammaðan hátt að íslenskir útgerðarmenn lýsa því yfir að þeir hyggjast koma sér undan áhrifum verkfallsins með því að leigja skip milli staða innan lands og utan. Ekki aðeins heyrir maður slíkar yfirlýsingar í fjölmiðlum heldur hafa mér borist til eyrna sögusagnir um mjög alvarlegar athafnir íslenskra útgerðarmanna sem benda til atvinnukúgunar af verstu gerð ef sannar eru. Felast þær í því að skipverjar eru sagðir þvingaðir til að skrifa undir nýja samninga um kjör sín að viðlögðum missi skipsplássins ella. Ég vona svo sannarlega að á slíkum sögum séu til eðlilegar skýringar því að ef sannar eru fela þær í sér atvinnukúgun sem er ekki sæmandi að viðgangist hjá siðmenntaðri þjóð.
Í raun má stórlega efast um siðferði þessara útgerðarmanna sem leyfa sér að lýsa því yfir að þeir ætli sér að koma sér undan löglega boðuðu verkfalli. Ég vona svo sannarlega að þetta sé ekki merki um það sem koma skal í íslensku atvinnulífi og ekki er síður undarlegt að forusta útgerðarmanna skuli ekki leggjast af hörku gegn slíkum yfirlýsingum. Ég tek undir það sem kom fram frá fyrri ræðumönnum að hér er um alvarlega atlögu gegn verkfallsréttinum að ræða sem hingað til a.m.k. hefur verið talinn til grundvallarmannréttinda, til allra helgustu mannréttinda. Íslenskir atvinnurekendur greiða ekki fyrir samningum með slíku athæfi að blása til orrustu um sjálfan verkfallsréttinn á viðkvæmu stigi samninga og ekki er annað hægt en að fordæma slíka framkomu í einu og öllu og þá að fordæma slíka framkomu íslenskra útgerðarmanna sem virðast samkvæmt þessu telja sig hafna yfir lög og reglur.
Í lokin þætti mér fróðlegt að heyra afstöðu hæstv. félmrh. til slíkra yfirlýsinga útgerðarmanna.