Atvinnu- og búseturéttur launafólks innan EES

7. fundur
Mánudaginn 29. maí 1995, kl. 16:41:15 (287)


[16:41]
     Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar) :
    Herra forseti. Það er ekki ofmælt að sjálfsagt væri hægt að orða hlutina á betri íslensku en er á þessu frv. Hitt er svo annað mál að þetta frv. var ekki þýtt af mér eða þýtt á mínum vegum. Það var þýtt á vegum fyrrv. ríkisstjórnar. Það hefur verið flutt hér á undanförnum tveimur þingum. Ég sá ekki ástæðu til þess að fara að leggja vinnu í það að breyta á því málfarinu þótt auðvelt sé að laga málfarið. Ég hef ekkert við það að athuga þó hv. félmn. lagfæri málfar en meiningin verður að blíva og hún er frá Brussel.