Aðskilnaður dómsvalds og umboðsvalds í héraði

8. fundur
Mánudaginn 29. maí 1995, kl. 17:00:02 (292)


[17:00]
     Ögmundur Jónasson :
    Þingforseti. Ég vil lýsa yfir stuðningi við það frv. sem hér er til umræðu. En ég kveð mér hljóðs til að skýra hvers vegna ég hef skrifað undir nál. allshn. með fyrirvara. Skýringin er sú að við umfjöllun þessa máls í þingflokki Alþb. og óháðra komu fram sjónarmið sem þótti nauðsynlegt og æskilegt að kæmu fram í umræðu í þingsal.