Aðskilnaður dómsvalds og umboðsvalds í héraði

8. fundur
Mánudaginn 29. maí 1995, kl. 17:35:48 (300)


[17:35]
     Svavar Gestsson :
    Virðulegur forseti. Ég tel að það skref sem hér er stigið sé í áttina, það sé rökrétt miðað við allar aðstæður. Þó verð ég að viðurkenna að ég tel að þær ábendingar sem fram hafa komið, m.a. hjá hv. 5. þm. Suðurl., séu allrar athygli verðar í þessu sambandi. Ég tel einboðið að áður en mjög langur tími líður muni þetta mál koma hingað inn aftur vegna þess að menn muni telja að hér sé ekki um fullnægjandi lausn á málinu að ræða. En þar sem hér er stigið skref í rétta átt að mínu mati þá greiði ég atkvæði með þessari tillögu.