Forseti (Ólafur G. Einarsson) :
Vegna fyrirspurnar hv. þm. verður að svara því svo að það er ekki óvenjuleg umgjörð að ekki séu mjög margir þingmenn í þingsalnum, en það eru 38 þingmenn í þinghúsinu og þeir hafa sjálfsagt margir hverjir möguleika á að fylgjast með umræðum þó að þeir séu ekki í þingsalnum, án þess að mér sé kunnugt um það. Hæstv. fjmrh. var í salnum fyrir skömmu og er í húsinu.