Stjórn fiskveiða

13. fundur
Fimmtudaginn 01. júní 1995, kl. 12:23:07 (390)

     Forseti (Ólafur G. Einarsson) :
    Forseti vill geta þess að á mælendaskrá eru nú 14 hv. þingmenn. Þeim og öðrum hv. þm. til glöggvunar liggur mælendaskrá frammi í hliðarherbergi við þingsalinn. Sakni einhverjir hv. þm. nafns síns þá geri þeir forseta viðvart.
    Þá vill forseti geta þess að um klukkan eitt verður gefið 20 mínútna fundarhlé og að því loknu fara fram atkvæðagreiðslur um 1.--5. dagskrármálið.