[14:10]
Frsm. félmn. (Kristín Ástgeirsdóttir) (andsvar) :
Hæstv. forseti. Vegna þessara orða hv. 8. þm. Reykv. þá vil ég bara ítreka það að þetta frv. var sent útgáfudeild Alþingis til yfirlestrar og það kom þaðan aftur athugasemdalaust. Það var leitað til þeirra sem eiga að annast þessi mál hér. Sú niðurstaða gefur okkur einmitt tilefni til þess að ræða hér svolítið vítt og breitt um hvernig að þessum málum skuli staðið.