[16:54]
Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Eins og fram kom hjá hæstv. ráðherra hafa verið óvenjulegar aðstæður í hafinu að þessu sinni og síldin lítið komið inn í íslensku lögsöguna. Ber þá að skilja þessa afstöðu ráðherrans á þann veg, sem mér sýnist beint að álykta, að það þurfi allnokkur ár í viðbót, a.m.k. 2--3, því að varla er hægt að byggja á einu ári, þar til íslensk stjórnvöld geti bæði á grundvelli fyrri veiðireynslu og núverandi og þáverandi byggt kröfugerð sína í framtíðinni á væntanlegu atferli síldarinnar? Mér fannst liggja í þessu svari sá botn hjá hæstv. ráðherra, sem ég vildi inna hann eftir, að það þyrfti að fá raundæmi um hegðan síldarinnar á næstu árum til að Íslendingar gætu sett fram efnislega kröfugerð. Ég ætla ekki úr þessum ræðustól hér og nú að tjá mig um slíka efnisafstöðu því að það gefst tækifæri til að ræða það í utanrmn. en ég vildi inna ráðherrann eftir þessu. Er hann með svari sínu að gefa til kynna að við þurfum að bíða í nokkur ár eftir að fá raunatferli síldarinnar áður en kröfugerð Íslands getur legið fyrir?