Stjórn fiskveiða

20. fundur
Mánudaginn 12. júní 1995, kl. 15:40:51 (685)


[15:40]
     Sighvatur Björgvinsson :
    Virðulegi forseti. Hv. þingmenn Framsfl. úr Reykn. hafa lýst því yfir við þessa umræðu að þeir samþykki tillögur meiri hlutans í trausti þess að við 3. umr. verði þessi tillaga samþykkt. Með öðrum orðum, þeir segja nei við tillögunni við 2. umr. í trausti þess að hún verði samþykkt við 3. umr. Þetta kalla ég meira en tæknileg mistök.
    Virðulegi forseti. Ég segi já í trausti þess að tillagan verði samþykkt.