[16:02]
Jón Baldvin Hannibalsson :
Herra forseti. Það er til marks um frjálslyndi hæstv. sjútvrh. og stjórnarmeirihlutans og örlæti að með þessari grein er verið að bjóða mönnum kosti. Annars vegar mega menn velja skert aflamark og ef þeir kjósa það til þess að bjarga eigum sínum þá eiga þeir ekki þaðan afturkvæmt. Hins vegar geta menn valið að fjölga banndögum sem hamla sjósókn. Þá verður lítið til skiptanna fyrir þá hina frjálsbornu menn sem eftir eru og örvænt um hvað verður um framtíð þeirrar útgerðar. Með öðrum orðum: Gjafir eru yður gefnar.
Maður gæti haldið að þessi frumvarpsgrein væri tæknileg mistök, en svo mun ekki vera. Ég segi nei.