Alþjóðaviðskiptastofnunin

20. fundur
Mánudaginn 12. júní 1995, kl. 23:52:00 (743)


[23:52]
     Pétur H. Blöndal (andsvar) :
    Herra forseti. Vegna ummæla síðasta ræðumanns, hv. alþm. Ágústs Einarssonar, gat ég þess í ræðu minni fyrr í kvöld að þessi ummæli og þessar skoðanir umsagnaraðila fyrir nefndinni komu fram áður en meiri hluti nefndarinnar gerði sínar breytingartillögur á frv. Eftir að þessar brtt. hafa komið fram tel ég að innflutningur verði í flestöllum vörutegundum sem um er rætt í III. og IV. viðauka við lögin þannig að ég held að mikið hafi breyst eftir að þessi brtt. kom fram.