[17:08]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Í umræðum um þetta mál hefur nokkuð borið á því að menn segja að það verði erfiðara að fylgjast með og hafa eftirlit með sölu á áfengi eftir að frv. hefur verið samþykkt. Ég hef mótmælt því og haldið hinu gagnstæða fram. Samt sem áður er búið að flytja hér brtt. um að það þurfi leyfi, það verði sett gjald á leyfishafana og til viðbótar verði myndaður sjóður eins og kemur fram í brtt. Það er þannig í dag að það eru ekki allar flöskur merktar ÁTVR, ekki þær sem eru sérpantaðar, ekki þær sem eru fluttar af einstaklingum til landsins, ekki þær sem eru keyptar í fríhöfn. Hins vegar er límt á flöskur sem fara til vínveitingahúsa og það er auðvitað hægt að halda því áfram. En það er auðveldara að fylgjast með eftir að þetta frv. verður að lögum vegna þess að það myndast heildsöluverð vegna þess að það verður munur á því verði sem vínveitingahúsin fá og smásalinn fær og því verði sem er selt út úr búð í smásölu. Fyrir vikið gerist það að sá sem ætlar að svindla og kaupa í smásölu til þess að selja út úr vínveitingahúsi verður að greiða meira en ella.
Nú er það svo að sá sem selur úr vínveitingahúsi verður að borga sama verð og sá sem gengur í áfengisverslunina og kaupir þar. Þetta hljóta allir að sjá að leiðir til þess að það má búast við því að minna verði um svindl. Til viðbótar má svo geta þess að það er mjög auðvelt að fylgjast með því hvað er keypt inn af þeim sem hafa heildsölu- og innflutningsleyfi og hvert þeir afhenda vöruna því að það eru aðeins smásalar sem mega við henni taka og með því verður fylgst. Í dag er það svo að það er mjög erfitt fyrir ÁTVR að fylgjast með því hvað gengur til vínveitingahúsa nema þegar selt er beinlínis til þeirra en ekki þegar t.d. þriðji aðili fer í útsölu og kaupir síðan til endursölu til þeirra sem hafa vínveitingaleyfi.
Þetta vona ég að skýri að nokkru leyti það sem ég hef verið að fjalla um og ef það gerist ekki þá held ég að mér sé mjög örðugt að gefa þær skýringar sem duga.