Verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf

22. fundur
Miðvikudaginn 14. júní 1995, kl. 13:47:42 (822)

[13:47]
     Kristín Ástgeirsdóttir :
    Hæstv. forseti. Í ljósi þeirra breytinga sem verið er að gera á Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins tel ég ekki óeðlilegt að setja fyrirtækinu stjórn, en hins vegar er orðalag þessarar greinar svo óljóst og í rauninni svo óskýrt hvert hlutverk þessarar stjórnar verður að ég kýs að sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.