Alþjóðaviðskiptastofnunin

22. fundur
Miðvikudaginn 14. júní 1995, kl. 16:03:44 (852)


[16:03]
     Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hver hefði nú trúað því fyrir kosningar að sú staða ætti eftir að koma upp á Alþingi á fyrsta mánuði þingsetu hv. þm. Péturs Blöndals að það skyldi verða hlutverk formanns Alþb. að verja heiður og heiðarleika kaupmannastéttarinnar gegn ásökunum hv. þm. Péturs Blöndals um að þetta séu slíkir gróðapungar að þeir muni aldrei láta neytendur njóta eins eða neins ef þeir eiga færi á að gera eitthvað annað. Ég get fullvissað þingmenn um það að ég mun halda áfram að verja heiður kaupmannastéttarinnar gegn árásum þessa nýja þingmanns Sjálfstfl.