[18:16]
Össur Skarphéðinsson :
Herra forseti. Framsfl. rak sína kosningabaráttu að verulegu leyti á húsnæðismálum og notaði hvert tækifæri til að útmála það hvernig Alþfl. hefði fullkomlega brugðist í því máli. Hv. þm. Jón Baldvin Hannibalsson rakti hérna áðan hvernig málflutningur Framsfl. byggðist á hreinum blekkingum.
Herra forseti. Í umræðunni sem fór fram í síðustu viku var þetta undirstrikað af hæstv. félmrh. Ég varpaði þá fram til hans eftirfarandi spurningum: Getur það verið að fætur hæstv. ráðherra séu gerðir úr gúmmíi og raunar allra ráðherra Framsfl. vegna þess að það er sama hvaða mál það er sem þeir eiga í höggi við Sjálfstfl. um, þeir kikna alltaf? Svar hæstv. ráðherra var svofellt: Þetta er rangt, vegna þess að ég hef ekki tekið upp húsnæðismálin við hæstv. fjmrh. Þetta var svarið. Með öðrum orðum er áhersla hæstv. félmrh. og ráðherra Framsfl. á kosningaloforðin og efndir þeirra ekki meiri en svo að þegar þeir loksins eru komnir í ríkisstjórn þá hafa þeir ekki einu sinni fyrir því að ræða efndir við samstarfsflokkinn.
Herra forseti. Þó að formaður Alþfl. hafi rakið í ítarlegu máli hverju Framsfl. lofaði í kosningabaráttunni þá langar mig á þessum 48 sekúndum sem ég á eftir að hlaupa aðeins á því sem ekki hefur verið minnst á, hvorki í þeirri greinargerð sem hæstv. félmrh. hefur lagt fram um það sem hann hyggst vinna að né heldur í sáttmála ríkisstjórnarinar. Framsfl. lofaði að láta Húsnæðisstofnun grípa til björgunaraðgerða til að aðstoða fólk við að greiða úr skuldavandamálum heimilanna. Það bólar ekkert á þessu. Framsfl. lofaði að setja lög um greiðsluaðlögun fyrir fólk í langvarandi greiðsluerfiðleikum og hv. þingmenn flokksins fluttu meira að segja sérstakt frv. um það á síðasta þingi. Það bólar ekkert á þessu. Framsfl. lofaði að lækka tímabundið vexti af húsnæðisskuldum fólks í fjárþröng og það gerði hæstv. iðnrh. í Tímanum í lok mars sl. Það bólar ekkert á þessu hjá hæstv. félmrh. Framsfl. lofaði líka að frysta skuldir meðan leitað væri lausna fyrir fólk í tímabundnum greiðsluerfiðleikum. Það bólar ekkert á því. (Forseti hringir.) Herra forseti, hæstv. félmrh. fyrir hönd Framsfl. á líka eftir að efna það kosningaloforð sem kom fram rétt undir lok kosningabaráttunnar að flokkurinn ætlaði sér bókstaflega að lækka skuldir fólks. Og menn spyrja auðvitað: Hvar eru efndir þessara orða? Á það að vera svo, herra forseti, í hverju málinu á fætur öðru að Framsfl. falli niður á hnén þegar hann á í höggi við Sjálfstfl.?