Forseti (Ragnar Arnalds) :
Nú fer fram utandagskrárumræða um málefni Brunamálastofnunar. Hæstv. félmrh. verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa. Um er að ræða hálftíma umræðu þar sem frummælandi og hæstv. ráðherra hafa 5 mínútur hvor, en að öðru leyti er ræðutími 2 mínútur.