Áfengislög

25. fundur
Fimmtudaginn 15. júní 1995, kl. 15:20:05 (981)


[15:20]
     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Ég tel að þau séu út af fyrir sig ágæt. Við

sem erum í minni hluta eigum ekki kost á að gleðjast yfirleitt yfir miklu hér í þessari stofnun. Meiri hlutinn ræður, hann hefur tekið ákvörðun um að keyra í gegn þessi þrjú brennivínsmál og það liggur þannig. Engu að síður hefur þó málflutningur okkar borið þann ávöxt að hæstv. ráðherrar lýsa því nú yfir að þeir muni taka á forvarnaþætti þessara mála í sumar. Ég get lýst því yfir fyrir hönd okkar þingflokks að við munum fylgja því máli eftir strax og þingið kemur saman í haust.