Ferill 20. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 20 . mál.


41. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 117/1994, um skipulag ferðamála.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fékk hún á sinn fund Ragnhildi Hjaltadóttur, skrifstofu stjóra í samgönguráðuneyti, og Pétur J. Eiríksson, framkvæmdastjóra markaðssviðs Flugleiða.
    Nefndarmenn urðu sammála um að mæla með samþykkt frumvarpsins en þó með þeirri breytingu að allir sem hafa leyfi til að starfrækja ferðaskrifstofu verði undanþegnir skilyrði um heimilisfesti á Íslandi. Í frumvarpinu var lagt til að einungis þeir sem starfrækja umboðs sölu farmiða njóti undanþágunnar, en rétt þykir að öll sú starfsemi, sem telst ferðaskrifstofu rekstur, falli hér undir. Nefndin mælir því með því að frumvarpið verði samþykkt með eftirfar andi

BREYTINGU:



    1. gr. orðist svo:
    Við 12. gr. laganna bætist ný málsgrein sem orðast svo:
    Ríkisborgarar þeirra ríkja, sem hafa heimild í milliríkjasamningum til að starfrækja ferða skrifstofu skv. 9. gr. laga þessara, skulu undanþegnir skilyrði a-liðar 1. mgr. um heimilisfesti á Íslandi.

    Guðmundur Árni Stefánsson og Ásta R. Jóhannesdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 7. júní 1995.



    Einar K. Guðfinnsson,     Magnús Stefánsson,     Ragnar Arnalds.
    form.     frsm.     

    Egill Jónsson.     Árni Johnsen.     Kristján Pálsson.

Stefán Guðmundsson.