Ferill 28. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 28 . mál.


105. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.



     1.     Á eftir 2. gr. komi tvær nýjar greinar er orðist svo:
                   a.     (3. gr.)
                            2. tölul. 3. mgr. 7. gr. laganna, sbr. 3. gr. laga nr. 87/1994, fellur brott.
                   b.     (4. gr.)
                            6. mgr. 10. gr. laganna, sbr. 6. gr. laga nr. 87/1994, fellur brott.
     2.     Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða er orðist svo:
                  Reikna skal sérstaka viðbótaraflahlutdeild til handa skipum sem stundað hafa línu veiðar á fiskveiðiárunum 1992/1993, 1993/1994 og 1994/1995 í mánuðunum nóvember, desember, janúar og febrúar þar sem afli var aðeins að hálfu talinn til aflamarks skv. 6. mgr. 10. gr. Skal samanlögð viðbótaraflahlutdeild þessara skipa vera jöfn hlutfallinu milli hálfs línuafla þeirra á þessum þremur árum í framangreindum mánuðum af hverri tegund annars vegar og úthlutaðs heildaraflamarks af sömu tegund á sömu árum að viðbættum samanlögðum hálfum línuafla í framangreindum mánuðum á sömu árum hins vegar. Skal aflahlutdeild allra skipa endurreiknuð að teknu tilliti til þessa.
                  Viðbótaraflahlutdeild línuskipa af hverri tegund skv. 1. mgr. skal skiptast milli þeirra í hlutfalli við þann afla af tegundinni sem ekki taldist til aflamarks vegna reglna um línu tvöföldun á framangreindum þremur fiskveiðiárum.