Framhaldsfundir Alþingis

Þriðjudaginn 30. janúar 1996, kl. 13:33:56 (2523)

1996-01-30 13:33:56# 120. lþ. 79.98 fundur 169#B framhaldsfundir AlÞingis#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 79. fundur


[13:33]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 30. janúar 1996, kl. 13.30.

Gjört í Reykjavík, 26. janúar 1996.

Vigdís Finnbogadóttir.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.``

Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismönnum, svo og starfsmönnum Alþingis, óska ég gleðilegs árs, þakka hið liðna, býð menn velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.