Samningsveð

Fimmtudaginn 01. febrúar 1996, kl. 14:54:31 (2651)

1996-02-01 14:54:31# 120. lþ. 82.3 fundur 274. mál: #A samningsveð# frv., GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur


[14:54]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Þessi orð sýna betur en nokkuð annað að ákvæðið um að lögfesta ekki veiðiheimildir er nauðsynlegt. Það er einmitt sú skoðun að þetta sé bara sýndarmennskuákvæði sem veldur tortryggni okkar. Hér ítrekar hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson að okkar skilningur er réttur. Ég þakka honum fyrir það.