Samningsveð

Fimmtudaginn 01. febrúar 1996, kl. 15:18:22 (2661)

1996-02-01 15:18:22# 120. lþ. 82.3 fundur 274. mál: #A samningsveð# frv., GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur


[15:18]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Hæstv. sjútvrh. spyr hvers vegna ég og fleiri þingmenn flytjum ekki tillögu um breytingu á þessu frv. þar sem bannað yrði að veðsetja aflaheimildir. Ég til taka skýrt fram að ég hef við þessa umræðu fagnað því að ekki á að lögfesta heimildir til að veðsetja veiðiheimildir. Ef lánastofnanir vilja áfram taka veð í veiðiheimildum á eigin ábyrgð þá er það að mínu mati alfarið þeirra mál og þeirra áhætta. Fyrir mér vakir það eitt að tryggja sameignarákvæði fiskveiðistjórnunarlaganna.