Útvarpslög

Þriðjudaginn 06. febrúar 1996, kl. 13:50:55 (2733)

1996-02-06 13:50:55# 120. lþ. 84.6 fundur 246. mál: #A útvarpslög# (auglýsingar) frv., SvG
[prenta uppsett í dálka] 84. fundur


[13:50]

Svavar Gestsson:

Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs vegna hins almenna eðlis þessa máls. Mér finnst hugsanlegt að mál af þessu tagi fari til sérstakrar skoðunar í umhvn. og einnig þá í menntmn. og efh.- og viðskn. sem hefur með samkeppnislögin að gera. Ég tel að það gæti verið varasamt að málið fari eingöngu til menntmn. Það er þess eðlis að það gæti lokast þar af. Ég vil því sérstaklega benda á að taka ætti þetta mál til meðferðar í hv. umhvn.