[18:13]
Árni M. Mathiesen (andsvar):
Herra forseti. Það var afar ánægjulegt að heyra það að hv. þm. Siv Friðleifsdóttir hefur áhyggjur af fjárhag ríkissjóðs. En hins vegar finnst mér það skjóta skökku við ef hún telur að vandi ríkissjóðs hafi orðið til á síðasta kjörtímabili. Mér finnst einnig einkennilegt að heyra að Framsfl. hafi ekki gert sér grein fyrir þessum vanda í síðustu kosningabaráttu. Ég gæti hugsanlega fyrirgefið hv. 4. þm. Reykn. það að hún gerði sér ekki grein fyrir þessum vanda vegna þess að hún sat ekki á þingi á síðasta kjörtímabili. En ef hún er að halda því fram að þeir þingmenn Framsfl. sem á þingi sátu sl. kjörtímabil og sátu m.a. í fjárln. hafi ekki gert sér grein fyrir þessum vanda, þá spyr ég hv. þm.: Eru þeir ekki vanhæfir til að gegna þeim störfum sem þeir gegna nú? Er hv. þm. Guðmundur Bjarnason ekki algerlega vanhæfur til að vera landbrh.? Og er hv. þm. Jón Kristjánsson ekki algerlega vanhæfur til að vera formaður fjárln.? Og að ég tali nú ekki um hæstv. ráðherra heilbrigðismála sem sat í heilbrn. allt síðasta kjörtímabil. Er hún ekki algerlega vanhæf til að takast á við þennan málaflokk? Að lokum vil ég spyrja hv. 4. þm. Reykn.: Ef þessi mikli vandi sem hún telur að hafi orðið til á síðasta kjörtímabili er 40 milljarðar, hversu stór hluti af þessum vanda varð þá til á því tímabili sem Framsfl. var í ríkisstjórn, nærri því 20 ár samfleytt þangað til ríkisstjórn Davíðs Oddssonar tók við 1991?