Umræða um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri

Þriðjudaginn 13. febrúar 1996, kl. 13:41:53 (2927)

1996-02-13 13:41:53# 120. lþ. 89.91 fundur 189#B umræða um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri# (aths. um störf þingsins), SighB
[prenta uppsett í dálka] 89. fundur


[13:41]

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Fyrst að svo er að a.m.k. annar af oddvitum ríkisstjórnarinnar getur ekki verið viðstaddur í dag þá á umræða um þetta mál að sjálfsögðu að frestast þangað til hann getur verið viðstaddur. Því eins og hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon sagði þá gengur það ekki að ræða þessi mál áfram án þess að hægt sé að fá upplýsingar frá oddvitum stjórnarflokkanna um það hvað hér er að gerast.