Vegáætlun 1995--1998

Þriðjudaginn 13. febrúar 1996, kl. 14:36:50 (2943)

1996-02-13 14:36:50# 120. lþ. 89.1 fundur 295. mál: #A vegáætlun 1995--1998# (endurskoðun fyrir 1996) þál. 12/1996, samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 89. fundur


[14:36]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):

Herra forseti. Eins og ég sagði áður munu fulltrúar Vegagerðar fara yfir vegáætlun með þingmönnum einstakra kjördæma. Þar verður farið yfir það hvernig sakir standa varðandi hverja framkvæmd. Sums staðar hafa verk unnist betur en annars staðar. Sums staðar hafa menn flýtt verkum þar sem það hefur verið talið hagkvæmt eins og gengur og allar þessar upplýsingar liggja fyrir og er unnið samkvæmt venju að þeim málum nú.