Vegáætlun 1995--1998

Þriðjudaginn 13. febrúar 1996, kl. 14:40:45 (2946)

1996-02-13 14:40:45# 120. lþ. 89.1 fundur 295. mál: #A vegáætlun 1995--1998# (endurskoðun fyrir 1996) þál. 12/1996, SF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 89. fundur


[14:40]

Siv Friðleifsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Þetta var afar merkileg ræða sem hv. þm. flutti, að segja að úrslit síðustu kosninga væru slys. Hv. þm. tók þátt í kosningabaráttunni eins og aðrir og ef hv. þm. kallar það slys að Framsfl. fékk þar 8.809 atkvæði, þá er hv. þm. að gefa kjósendum langt nef og það er þá rétt að kjósendur viti það.