[16:22]
Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):
Herra forseti. Vegna fyrirspurna hv. þm. vil ég fyrst taka það fram að það hefur ekki verið áskilið af Vegagerðinni svo ég viti til, hvorki í jarðgöngum undir Hvalfjörð né fyrir vestan hvort malbik eða steinsteypa yrði fyrir valinu. Ég hélt einmitt að væri mjög gott samband á milli Spalar og sementsverksmiðjunnar þannig að hægt hefði verið að halda þar öllu vel til haga sem styrkti steinsteypuna í samanburðinum við malbikið, a.m.k. í því verki.
Í sambandi við jarðgöngin hefur það eitt verið áskilið að verktaki vinni í samráði við norska staðla eins og hv. þm. vék að áðan.
Annars vil ég aðeins segja í sambandi við fyrirspurn hans um það hvort íslensk steinefni yrðu notuð aðallega til vegagerðar hér á landi, að stundum eru efniseiginleikar þannig að menn kjósa heldur að flytja inn steinefni, t.d. ljóst steinefni í malbik á Reykjavíkursvæðinu. Það kann einnig að vera ódýrara. Í annan stað skilst mér að myndarleg tilraun hafi verið gerð með því að steypa götu eða veg ofan við Höfðabakka sem Sementsverksmiðjan stóð að og verður fróðlegt að fylgjast með því hvernig sú tilraun gefst.