[16:25]
Magnús Stefánsson:
Virðulegur forseti. Hér er til umfjöllunar tillaga hæstv. samgrh. um breytingar á þingsályktun um vegáætlun fyrir árin 1995--1998. Í þessari tillögu kemur fram að fjármagn til framkvæmda í vegamálum er lækkað frá því sem gert var ráð fyrir í fyrirliggjandi vegáætlun. Það er vissulega mikið áhygguefni og vonbrigði að standa frammi fyrir þeirri staðreynd að þurfa að draga úr vegaframkvæmdum.
Samgöngur og nauðsyn uppbyggingar vegakerfisins á landsbyggðinni er að mínu mati brýnasta og mesta hagsmunamál íbúa landsins, ekki eingöngu landsbyggðarinnar heldur landsins alls. Þess vegna hefði verið ákjósanlegt að standa frammi fyrir þeirri staðreynd hér í dag að um væri að ræða aukið fjármagn til vegaframkvæmda. En svo er ekki og kem ég nánar að því síðar.
Virðulegi forseti. Ég get ekki látið hjá líða að koma aðeins inn á þá umræðu sem hér hefur farið fram í dag, þar sem sumir hv. þingmenn hafa farið út í þá sálma að rekja raunir sínar og sinna kjördæma í vegamálum. Það væri út af fyrir sig hægt að fara út í slíka umræðu. Ég gæti t.d. farið yfir það hve nauðsynlegt og brýnt það er að ráðast af krafti í ýmsar vegaframkvæmdir á Vesturlandi, í mínu kjördæmi. Ég gæti t.d. bent á það hve mikilvægt er að hraða samtengingu þéttbýlisstaða á norðanverðu Snæfellsnesi. Ég gæti líka bent á það hve mikilvægt er að ráðast í framkvæmdir við fjallvegi, t.d. á Snæfellsnesi þar sem akvegir eru nánast óökufærir á köflum. Ég gæti líka nefnt það hve mikilvægt væri að ráðast í vegaframkvæmdir í uppsveitum Borgarfjarðar til að styrkja byggðina þar. Ég tek þetta sem dæmi um nokkur atriði sem ég gæti farið út í að ræða hér og eytt tíma í. En ég ætla að láta það bíða betri tíma. Ég vil hins vegar benda á það hvernig sumir hv. þingmenn hafa rætt þessi mál í dag. T.d. vil ég nefna ræður hv. þm. Guðmundar Árna Stefánssonar og hv. þm. Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur sem reyndar áttu það sammerkt báðar að vega að Framsfl. og láta að því liggja að Framsfl. væri að svíkja kosningaloforð í þá veru að flokkurinn hafi lofað að auka vegaframkvæmdir fyrir síðustu kosningar. Það er rétt að þingmenn Framsfl. eins og ég hygg allra annarra flokka hafa mikinn hug á því að efla þessar framkvæmdir. Ég held að það sé rétt mat hjá mér að þetta er sameiginlegt áhugamál allra þingmanna.
Hins vegar höfum við framsóknarmenn ásamt samstarfsflokknum, Sjálfstfl., unnið að því meginmarkmiði sem reyndar kemur fram í tillögunni sem liggur hér fyrir að draga úr halla ríkissjóðs. Við stöndum akkúrat frammi fyrir þeirri staðreynd að ef á að byggja upp efnahag ríkissjóðs til lengri tíma litið, þá verður að draga úr útgjöldum. Við þekkjum þessa umræðu frá því fyrr á þessu þingi, fyrir áramót þegar umræða var um fjárlög.
Ég tel að það sé eitt mikilvægasta verkefni okkar þingmanna nú að ná tökum á ríkisfjármálum þannig að við búum í hag fyrir ekki eingöngu okkar kynslóð heldur kynslóðirnar sem á eftir koma, börn okkar og barnabörn. Þess vegna stöndum við frammi fyrir því verkefni sem við m.a. erum að ræða hér í dag.
Ég vil líka benda á að málflutningur hv. þm. Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur minnti mig örlítið á gamlan veðhlaupahest sem getur eingöngu horft í eina átt því það var einkenni þeirrar ræðu sem þingmaðurinn flutti að hún horfði eingöngu innan borgarmarka Reykjavíkur og gaf því ekki gaum hvað gerist annars staðar á landinu. Þetta held ég að hv. þm. Svavar Gestsson mundi líklega skilgreina sem kjördæmapot og ég get tekið undir það.
Virðulegur forseti. Ég vildi rétt draga fram þessar tvær ræður sem hér hafa verið fluttar svona rétt til að sýna fram á það hvernig umræða um þessi efni getur orðið.
Ég studdi þau markmið sem lágu að baki fjárlaganna sem samþykkt hafa verið fyrir þetta ár, 1996, þ.e. ná tökum á ríkisfjármálum, og þess vegna mun ég vinna að heilindum að því að útfæra þá tillögu sem hér liggur fyrir. Það er ljóst að það mun valda íbúum landsins alls, ekki eingöngu landsbyggðarinnar heldur einnig á höfuðborgarsvæðinu, miklum vonbrigðum því að væntingar hafa verið miklar um uppbyggingu vegakerfisins víða um landið enda er hér um að ræða eitt heitasta mál íbúa landsins alls.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu öllu meir. Ég tel að sú tillaga sem hér liggur fyrir og hæstv. samgrh. hefur mælt fyrir sé eðlileg í ljósi þeirra aðstæðna sem nú eru og því tel ég að eðlilegt sé að endurskoða vegáætlun ársins á þeim grunni.