Fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri

Miðvikudaginn 14. febrúar 1996, kl. 13:38:09 (2997)

1996-02-14 13:38:09# 120. lþ. 90.2 fundur 254. mál: #A fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri# (EES-reglur, fiskveiðar og fiskvinnsla) frv. 46/1996, 242. mál: #A fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri# (sjávarútvegsfyrirtæki) frv., 307. mál: #A fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri# (sjávarútvegsfyrirtæki) frv., ÓE (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur


[13:38]

Ólafur G. Einarsson (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég hafði samband við hæstv. forsrh. í gær um þetta mál, og þá sem forseti þingsins, og hann tjáði mér að hann mundi verða við þessa umræðu í dag. Mér skilst að hann sé ekki kominn í húsið. Hæstv. utanrrh. er að koma frá útlöndum um þessar mundir og ég veit ekki betur en að tryggt hafi verið að hann mun jafnframt koma og verða við þessa umræðu. Þetta vildi ég upplýsa.