Fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri

Miðvikudaginn 14. febrúar 1996, kl. 14:46:12 (3020)

1996-02-14 14:46:12# 120. lþ. 90.2 fundur 254. mál: #A fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri# (EES-reglur, fiskveiðar og fiskvinnsla) frv. 46/1996, 242. mál: #A fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri# (sjávarútvegsfyrirtæki) frv., 307. mál: #A fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri# (sjávarútvegsfyrirtæki) frv., EOK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur


[14:46]

Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Ef þetta stendur í athugasemdum við stjfrv. sem ég efa ekki að sé rétt... (SvanJ: Í lagagreininni sjálfri.) Í lagagreininni sjálfri. Þá get ég alveg lýst því yfir að ég tel þá túlkun ranga. Þetta er ekki svona.

Í öðru lagi hvatti ég til þess að efh.- og viðskn. þingsins taki þetta mál til meðferðar og reyni að finna á því flöt, kanni hvort við gætum ekki náð víðtækri samstöðu um það hvernig við högum þessum málum. Og ég ítreka það hér.