[14:33]
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Um hæstv. fjmrh. mætti segja eftir þessa ræðu: ,,Lítillátur, ljúfur, kátur, leikur ei úr máta.`` Ef taka ætti orð hans bókstaflega væri þetta frv. eiginlega öllum öðrum að þakka en honum, hans helsta framlag til þessa hafi verið að standa ekki gegn því að sú vinna færi fram sem aðrir hefðu ákveðið að hæfist. Ég held satt að segja, virðulegi forseti, að hæstv. fjmrh. eigi meiri heiður af málinu en bara það að hafa ekki stöðvað framgang þess máls sem vinna var hafin við í hans tíð. Hans skoðanir hafa komið talsvert fram í þessu máli. Ég tel mig vita það fyrir víst þar sem hann var stuðningsmaður frv. fræga sem fylgt var úr hlaði árið 1989. Það sýnir að viðhorf hans hafa haft talsvert með það að gera að sú niðurstaða varð sem orðin er. En með þessu frv. má segja að samin hafi verið sátt á milli fjmrn., þ.e. framkvæmdarvaldsins, Ríkisendurskounar og ríkisreikningsnefndar og fjárveitingavaldsins, en ég vildi samt sem áður gjarnan sjá þau atriði inni í frv. sem ég tiltók hér áðan.