Tóbaksvarnir

Fimmtudaginn 15. febrúar 1996, kl. 17:13:06 (3092)

1996-02-15 17:13:06# 120. lþ. 91.2 fundur 313. mál: #A tóbaksvarnir# (aldursmörk, munntóbak, reyklaus svæði o.fl.) frv. 101/1996, JBH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 91. fundur


[17:13]

Jón Baldvin Hannibalsson (andsvar):

Herra forseti. Af þessu tilefni vil ég taka skýrt fram, og sá er kannski munur á mér og fyrrv. formanni Alþb. að ég lít ekki á Bandaríkin sem hina sjálfsögðu fyrirmynd í stóru sem smáu. Ég hef sömu skoðanir á ofstjórnartilhneigingum af þessu tagi eins og hinir nýfrjálsu utanríkisráðherrar Austur-Evrópuríkja sem ég vitnaði til áðan.