Stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar

Þriðjudaginn 27. febrúar 1996, kl. 15:28:54 (3291)

1996-02-27 15:28:54# 120. lþ. 96.1 fundur 331. mál: #A stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar# frv. 103/1996, ÁMM (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 96. fundur

[15:28]

Árni M. Mathiesen (andsvar):

Herra forseti. Ég er vanastur því eftir áralöng kynni af hv. 9. þm. Reykn. að skoðanir hans liggi jafnan ljósar fyrir. Eftir að hafa hlýtt á ræðu hv. 9. þm. Reykn., bæði hér í þingsalnum og eins í sjónvarpi í öðru herbergi í húsinu, er mér ekki ljóst hvort hann er samþykkur því grundvallaratriði þessa frv. að breyta Pósti og síma í hlutafélag eða ekki. Því vil ég spyrja hv. þm. Guðmund Árna Stefánsson: Er hann samþykkur því að breyta Pósti og síma í hlutafélag eða er hann mótfallinn því?