Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):
Herra forseti. Það fór ekki milli mála að hv. þm. þótti það vond lending að hér skuli lagt til að breyta Póst- og símamálastofnun í hlutafélag. Var svo að skilja á hv. þm. að hann kenndi því mest um að þeir ráðgjafar sem ég hef haft við undirbúning málsins séu ekki góðir. Hann nefndi sérstaklega til þá embættismenn sem ég fól að undirbúa verkið og jafnframt að kynna sér hvernig staða þessara mála er á öðrum Norðurlöndum. Það er nýmæli hér í sölum Alþingis að vikið sé að embættismönnum með þessum hætti úr þessum stól. Enda sást að hv. þm. var mjög brátt á meðan hann var að flytja þennan hluta ræðu sinnar.
Annars vil ég tala út frá þeim efnisatriðum sem hv. þm. vék að áðan. Ég vil ítreka það sem ég áður sagði að Póst- og símamálastofnun getur ekki unnið á sama grundvelli og áður nema vegna þess að sá grundvöllur er ekki fyrir hendi vegna þeirra samkeppnislaga sem sett hafa verið og vegna þeirra samninga sem við höfum gert um hið Evrópska efnahagssvæði. Þetta hélt ég að hv. þm. væri kunnugt. Það dugir ekki að halda sig 90 ár aftur í tímanum til að reyna að fela þessar staðreyndir fyrir sjálfum sér eða draga poka yfir höfuð sér. Til að hægt sé að halda Póst- og símamálastofnun í einu fyrirtæki, Pósti og síma hf., er óhjákvæmilegt að það fyrirtæki sé ekki með bakábyrgð ríkissjóðs. Fyrirtæki sem starfar með bakábyrgð ríkissjóðs á öllum sínum skuldbindingum eins og var uppástunga hv. þm. Ragnars Arnalds hér fyrr í dag, uppfyllir ekki skilyrði samkeppnislaga. Það þýðir ekki neitt að koma hingað upp og tala um að ég sé með þröngan ráðgjafahóp æðstu embættismanna samgrn. þegar kemur að því að ræða efnislega um þennan þátt málsins. Mér þykir vænt um Póst- og símamálastofnun og vil tryggja framtíð hennar á þeim grundvelli sem þar hefur verið og reyna að tryggja starfsöryggi fólksins sem þar vinnur.