Skipun nefndar um fréttaflutning af slysförum

Miðvikudaginn 28. febrúar 1996, kl. 14:03:08 (3367)

1996-02-28 14:03:08# 120. lþ. 97.3 fundur 303. mál: #A skipun nefndar um fréttaflutning af slysförum# fsp. (til munnl.) frá dómsmrh., dómsmrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 97. fundur

[14:03]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Ég er ekki með erindisbréfið við höndina en hygg að ég muni rétt að ekki hafi verið sett ákveðin tímamörk en um það rætt við formann nefndarinnar að reynt yrði að hafa eðlilegan framgangshraða á þessu starfi og því mati sem þarf að fara fram. Ég vona að það verði ekki neinn óeðlilegur dráttur á störfum nefndarinnar. En eðlilega hlýtur starf af þessu tagi að taka nokkurn tíma því að í þessu sambandi komu upp fjölmörg álitaefni sem þurfa íhugunar við og það þarf að samræma sjónarmið fjölmargra aðila sem koma að málinu.