Umferðaröryggi og framkvæmdaáætlun

Miðvikudaginn 28. febrúar 1996, kl. 14:52:10 (3386)

1996-02-28 14:52:10# 120. lþ. 98.4 fundur 157. mál: #A umferðaröryggi og framkvæmdaáætlun# þál. 8/1996, ArnbS
[prenta uppsett í dálka] 98. fundur

[14:52]

Arnbjörg Sveinsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir svörin. Ég vildi aðeins vekja athygli á þessum atriðum, sérstaklega hvað varðar öryggisbelti í skólabifreiðar vegna slysa á skólabörnum við umferðaróhöpp skólabíla. Foreldrar sem hafa miklar áhyggjur af þessu máli hafa haft samband við mig. Ég vona að þetta nái fram að ganga þegar þær reglur sem þingmaðurinn minntist á taka gildi.