Verðmyndun hjá Osta- og smjörsölunni

Miðvikudaginn 28. febrúar 1996, kl. 15:31:24 (3392)

1996-02-28 15:31:24# 120. lþ. 98.91 fundur 208#B verðmyndun hjá Osta- og smjörsölunni# (umræður utan dagskrár), Forseti StB
[prenta uppsett í dálka] 98. fundur

[15:31]

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Eins og tilkynnt hafði verið hefst nú utandagskrárumræða. Málshefjandi er Ágúst Einarsson. Landbrh. verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 50. gr. þingskapa, 1. mgr., þ.e. hálftíma umræða. Efni umræðunnar er ákvörðun samkeppnisráðs um verðmyndun hjá Osta- og smjörsölunni og Mjólkursamsölunni og úrelding Mjólkursamlags Borgfirðinga.