Svavar Gestsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Það er enginn ágreiningur á milli okkar hæstv. ráðherra í þessu efni. Ég tel mjög mikilvægt að það liggi fyrir sá vilji m.a. af hálfu samgrn. og einnig af hálfu ýmissa annarra aðila eins og Flugmálastjórnar og borgaryfirvalda að farið verði í að undirbúa endurnýjun þessa samnings um Reykjavíkurflugvöll með tilliti til þess að umferðin verði eitthvað takmörkuð frá því sem nú er og öryggið verði betur tryggt en okkur finnst vera gert í dag. Ég viðurkenni að að mörgu leyti er þetta huglægt mat þeirra sem búa á þessu þrengsta svæði og kynnast flugvélaumferðinni frá degi til dags en ég segi alveg eins og er að mér finnst ástæða til þess að skoða málin og taka þessar áherslur alvarlega.
Hitt segi ég líka að ég er þar með ekki að draga úr nauðsyn þess að hafa öryggi á öðrum flugvöllum og mér finnst engin þörf á því að tala svoleiðis um mál af þessu tagi, hæstv. forseti.