Flugmálaáætlun 1996--1999

Þriðjudaginn 05. mars 1996, kl. 14:35:01 (3515)

1996-03-05 14:35:01# 120. lþ. 100.4 fundur 365. mál: #A flugmálaáætlun 1996--1999# þál. 13/1996, ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 100. fundur

[14:35]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir að það er mjög mikilvægt að þessi umræða er hafin og ég ítreka að ég tel að það þurfi að vera komin niðurstaða í þessi mál áður en við afgreiðum flugmálaáætlun úr samgn. fyrir vorið. Það er mikilvægt að við þingmenn í samgn. fáum upplýsingar um það hvernig málum verði háttað varðandi framkvæmdir á Reykjavíkurflugvelli áður en við afgreiðum flugmálaáætlun fyrir árin 1996--1999, til næstu fjögurra ára.